Hvernig spilast Kínaskák
- Spilið er í heild 8 umferðir.
- Gefin eru 13 spil á mann (eitt i einu).
- Eftir því sem leikmenn eru fleiri þá þarf fleiri stokka. (2 stokkar fyrir 2-4 leikmenn , 3 stokkar fyrir 5-6 leikmenn).
Fleiri leikmenn = þá skipta á borðum, Til dæmis tvö borð með 4-6 leikmenn og sá sem hæðstur og sá sem er lægstur skipta um borð. - Hafa 2 jókera í hverjum stokk.
- Jókerinn gildir sem allt.
- Umferðirnar eru 8 og ganga út á að safna í raðir og þrennur og losa sig við spil.
- Raðir samanstanda af fjórum spilum í sömu sort og geta byrjað eða endað á ás.
Sé safnað fleiri en einni röð í umferð mega raðirnar ekki vera í sömu sort (þ.e.a.s. hjarta og hjarta, verður að vera t.d. hjarta og spaði). Raðir þurfa að vera lámark fjögur spil en mega vera endalaust langar, stoppa samt alltaf á ásnum. - Þrennur samanstanda af lámarki 3 eins spilum (ekki endilega í sömu sort). Mega vera endalaust stórar en aldrei færri en 3 spil.
- Þegar leikmaður hefur náð að safna því sem er í umferðinni, þá má leikmaður leggja niður þegar röðin kemur að honum.
- Síðan reyna leikmenn að losa sig við spilin með því að leggja við hjá öðrum og hægt er að taka jókera úr röðum annara (en ekki úr þrennum) . Ekki er hægt að taka jókera eða leggja við hjá öðrum ef leikmaður hefur ekki lagt niður sín spil.
- Sá sem er í forhönd á alltaf rétt á að taka spil sem hent er út en vilji hann ekki taka það geta aðrir leikmenn „keypt“ það og kalla þá „kaupi“!
Þeir sem kaupa, taka spilið sem hent er út og efsta spilið úr stokknum líka.
Ekki má kaupa nema þrisvar í hverri umferð (þá er fjöldi spila á hendi orðinn 19)
ATH að refsistig gilda ef keypt er í fjórða skiptið í hverri umferð sem er 200stig. - Áður en fyrsta spili er snúið við í hverri umferð, spyr sá sem er í forhönd hvort allir séu tilbúnir og snýr svo efsta spilinu við, svo allir fái jafnt tækifæri á að kaupa kjósi sá sem er í forhönd ekki að nýta það.
- Fyrstur kaupir fyrstur fær. Ef ágreiningur rís um hver var á undan að kaupa, er dregið efstu spil úr stokk til leikmanna sem deila og sá sem hærra spilið dró - vinnur sín kaup. (spilin sem dregin voru eru svo sett í miðjan stokk)
- Í 8 umferð er ekki hægt að "kaupa" í spilinu
Röð umferðana eru:
1. Röð og þrenna
2. Tvær þrennur
3. Tvær raðir
4. Tvær þrennur og ein röð
5. Tvær raðir og ein þrenna
6. Þrjár þrennur
7. Þrjár raðir
8. Tvær raðir og tvær þrennur (Öll spilin 13 sem gefin voru + eitt sem dregið er úr bunka til að leggja niður)
Stig
Í spilinu gildir að fá sem fæst stig og losa sig við sem flest spil.
Sá sem er með fæst stig í lok allra 8 umferðana er sigurvegari.
- Jóker = 20 stig
- Ás = 15 stig
- 9-10-gosi-drottning-kóngur = 10 stig
- 2-8 = 5 stig
- Keypt 4 sinnum í umferð = 200 stig
Hvernig spilið er spilað er útskýrt í video hér fyrir ofan.
Deildu þessari síðu